Afhendingar og sendingar skilmálar
Afhendingarar og sendingar skilmálar
Toppform dreifir vörum til viðskiptavina sinna á höfuðborgarsvæðinu. Viðskiptavinur sem pantar vöru til sendingar utan höfuðborgarsvæðisins óskar þar með eftir flutningi vörunnar á viðkomandi stað. Komi ekki fram ósk um annað verður vara send með Póstinum.
Sendingarkostnaður er reiknaður út frá gjaldskrá Póstsins eða annars tilgreinds flutningsaðila, með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærð þeirra og þyngdar. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar viðkomandi flutningsaðila um afhendingu vöru.
Vara afhent á höfuðborgarsvæðinu telst afhent þegar viðskiptavinur hefur veitt henni viðtöku og tekur viðskiptavinur þá við áhættu af söluhlut. Hafi hlut ekki verið veitt viðtaka á réttum tíma færist áhættan einnig í því tilviki yfir til viðskiptavinar.
Að öðru leyti telst vara afhent þegar viðskiptavini er kunnugt um að hann geti vitjað hennar hjá flutningsaðila. Áhættan af því að vara skemmist flyst yfir til neytanda þegar hún hefur verið afhent kaupanda.
Uppgefinn afhendingartími skal standa nema ef varan er ekki til á lager vegna villu í hugbúnaði eða rangrar birgðastöðu þá mun varan verða afhent við fyrsta tækifæri þó eigi síðar en innan 3ja virkra daga sé þess frekast kostur.
Á álagstímum og stórhátíðum getur þessi afhendingartími lengst, við reynum ávalt að standa við 3 virka daga í afhendingu en það getur lengst ef álag er mikið.